Búseti á Akureyri var stofnað 27. mars 1984. Starf félagsins var takmarkað fram til ársins 1989. Fyrsta íbúð félagsins var tekin í notkun árið 1990. Félagið sameinaðist Búseta á Húsavík frá áramótum 2005 og starfar nú undir nafninu Búfesti hsf.
Félagið á 26 íbúðir á Húsavík og íbúðirnar á Akureyri eru 241 og þannig alls 273. Mest var byggt árin 2007 og 2008. Þá voru teknar í notkun 58 íbúðir í fjölbýlishúsi á Akureyri og 12 íbúðir í minna fjölbýli.
Fjöldi virkra félagsmanna hefur verið nokkuð stöðugur frá árinu 2010 eða á milli 900 og 1.000 einstaklingar.
Árið 2022 keypti félagið Baldursnes 4 og við það var hægt að sameina skrifstofu og verkstæði. Opnunartími skrifstofu verður áfram sá sami eða frá 9-12 mánudaga - fimmtudaga. Starfsmenn félagsins aðstoða og upplýsa almenning um starfsemi félagsins, kosti búsetufyrirkomulagsins, taka við inntökubeiðnum og annast alla umsýslu vegna félagsmanna og íbúða félagsins.
Sími skrifstofu er 460 5800
Utan skrifstofutíma er hægt að hringja í neyðarnúmer Búfesti sem er 860 5828