Aðalfundur Búfesti hsf. verður haldinn fimmtudaginn 9. júní 2022, kl. 19:00
Fundarstaður: Lions salurinn í Skipagötu 14 - 4. hæð.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra fyrir liðið starfsár.
2. Endurskoðaðir reikningar 2021 lagðir fram.
3. Umræður um skýrslu stjórnar / framkvæmdastjóra og ársreikning.
4. Afgreiðsla ársreiknings.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Ákvörðun um inntökugjald og árgjald.
7. Ákvörðun gjalds í viðhaldssjóð og tilhögun innheimtu.
8. Kynning og umræður á fjármögnunarforsendum; rekstraráætlunum, þjónustustefnu, leigulíkani, mánaðargjaldi og uppbygging á gjaldskrá félagsins.
9. Ákvörðun stjórnarlauna.
10. Kosningar;
A: Kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára.
B: Kosning 5 varamanna í stjórn til eins árs.
C: Kosning endurskoðunarfélags / löggilts endurskoðanda.
11. Önnur mál sem heyra undir aðalfund og kynnt eru í fundarboði.
Breytingar á samþykktum munu liggja frammi á skrifstofu félagsins og vefsíðu félagsins.